Olíurisinn Shell segir hámarki olíuframleiðslu náð í tilkynningu frá fyrirtækinu. Hámarki hafi verið náð árið 2019 og ekki sé útlit fyrir að annað eins magn olíu verði framleitt í framtíðinni. Losun koltvísýrings hafi náð hámarki árið 2018, þar sem 1.7 gígatonnum af koltvísýringi var sleppt út í andrúmsloftið.

Þessi tilkynning Shell ætti ekki að koma á óvart þar sem niðursveifla hefur verið á olíumörkuðum undanfarin ár. Shell afskrifaði eignir fyrir tæpa 22 milljarða dollara í fyrra og fyrir skemmstu tilkynnti bandaríski olíuframleiðandinn Exxon Mobil um 22 milljarða dollara tap á síðasta ári. Það er stærsta tap fyrirtækisins á einu ári í fjóra áratugi.

COVID-19 faraldurinn hefur átt stóran þátt í erfiðu gengi olíufyrirtækja þar sem orkunotkun hefur minnkað og verð á olíu fallið í samræmi við það. Alþjóðaorkumálastofnunin lýsti því yfir í fyrra að „varasamt“ ástand gæti orðið viðvarandi í bransanum. Í septem­ber tók olíu­risinn í sama streng og Shell hefur nú gert og sagði að olíu­tindinum hefði verið náð og fram undan væri niður­sveifla í olíu­fram­leiðslu og notkun.

Í tilkynningu Shell kom einnig fram að fyrirtækið stefndi að því að vera hlutlaust hvað losun koltvísýrings varðaði árið 2050, meðal annars með að auka hlut sinn í framleiðslu orku með lífeldsneyti. Rannsóknir benda hins vegar til þess að slík orkuframleiðsla sé litlu minna mengandi en framleiðsla orku með náttúrugasi og dísilolíu.

Shell stefnir að því að hlutur lí­felds­neytis og vetnis í orku­fram­leiðslu þess verði um 10 prósent fyrir árið 2030. Það ætlar sömu­leiðis að auka fram­leiðslu orku með náttúrugasi og bæta slíka fram­leiðslu­getu um sem nemur um sjö milljónum tonna fyrir miðjan ára­tuginn. Þrátt fyrir Shell ætli sér að eyða þremur milljörðum dollara í endur­nýjan­lega orku­gjafa á komandi árum eyðir það enn tugum milljarða dollara í leit að olíu og náttúrugasi.

Þó svo að Shell telji að há­marks­fram­leiðslu olíu sé náð, sem eru góðar fréttir fyrir um­hverfið, mun það hafa slæm á­hrif á starfs­fólk þess. Það gerir ráð fyrir að aukin fram­leiðsla orku með endur­nýtan­legum að­ferðum leiði til þess að um tíu prósentum af starfs­fólki þess verði sagt upp.

frettabladid.is sótt 15/02/2021