Það er mikilvægt að átta sig á því að við höfum áhrif á umhverfið á hverjum einasta degi. En við höfum val um hvers konar áhrif við viljum hafa.Við getum til dæmis verið meira meðvituð um þær vörur sem við kaupum. Hvar var varan búin til? Getum við valið vöru sem er framleidd nálægt okkur og þannig sparað eldsneyti? Var varan búin til af börnum sem látin eru vinna sem þrælar? Voru einhver dýr pyntuð við framleiðslu vörunnar og hafði framleiðsluferlið neikvæð áhrif á umhverfið? Og svo getum við líka spurt okkur: Þurfum við virkilega á vörunni að halda? 

Áhrif olíumengunar í Ekvador

Margir hafa töluverðar áhyggjur af þeim neikvæðu áhrifum sem við höfum á umhverfið en þeim vex vandamálið í augum. Baráttan virðist vonlaus og þeir gera því ekki neitt. En við verðum að muna að áhrifin af því þegar hundrað, þúsundir og jafnvel milljónir manna fara að spyrja þessara spurninga geta verið gífurleg.Í rauninni er líklega eina leiðin til þess að hafa áhrif á umhverfisstefnu stóru fyrirtækjanna sú að nógu margir neytendur sniðgangi vörur sem skaða umhverfið. Það mun leiða til þess að fyrirtækið finnur leiðir til að framleiða vöruna á umhverfisvænan hátt eða hættir framleiðslu hennar.Það mun einnig hafa umtalsverð jákvæð umhverfisáhrif þegar fleiri og fleiri gerast grænmetisætur. Það er auðvelt að finna upplýsingar um hversvegna svo er.

Frumbyggjar tóku iðulega ákvarðanir eftir að hafa velt fyrir sér hvaða áhrif þær mundu hafa á næstu kynslóðir. Myndin er af drengjum sem tilheyra Yao-ættbálkinum í Malaví.

Frumbyggjar tóku iðulega ákvarðanir eftir að hafa velt fyrir sér hvaða áhrif þær mundu hafa á næstu kynslóðir. Í dag eru margar ákvarðanir teknar á grundvelli þess hvaða áhrif þær munu hafa á næsta hluthafafundi – jafnvel meiriháttar ákvarðanir eins og bygging risastíflu.

Vísindavefurinn (sótt 02.04.2020)