Norðmenn hyggjast nýta sér hátækni Carbon Recycling í Svartsengi til að reisa 28 milljarða króna verksmiðju í Norður-Noregi sem fangar útblástur frá kísilmálmvinnslu og breytir honum í umhverfisvænt eldsneyti. Fjallað var um verkefnið í fréttum Stöðvar 2.

Það er liðin átta ár frá því Carbon Recycling reisti verksmiðju sína í Svartsengi, ekki síst til að flytja út hugvit frá Íslandi, með því að sýna umheiminum fram á að þetta væri hægt; að fanga koltvísýring frá iðnaði, í þessu tilviki frá orkuveri HS Orku, og breyta honum í metanól.

Frá verksmiðju Carbon Recycling International (CRI) í Svartsengi. Mynd:Vísir.is

Þjóðverjar með stuðningi Evrópusambandsins voru fyrstir til að kaupa hugmyndina og hófu vorið 2019 að nýta koltvísýring kolaorkuvers við Köln til framleiðslu metanóls.

Svíar eru að prófa sig áfram í Luleå með að nýta útblástur stálframleiðslu og einnig Kínverjar sem reisa núna stóra metanólverksmiðju í Hunan-héraði. Og núna hefur Carbon Recycling fengið Norðmenn í viðskiptamannahópinn, að sögn Benedikts Stefánssonar, framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar fyrirtækisins.

Norska ríkisorkufyrirtækið Statkraft og kísilmálmframleiðandinn Finnfjord ætla í samstarfi við Carbon Recycling að þróa verksmiðju í Norður-Noregi sem breytir koltvísýringi frá kísilmálmvinnslu í metanól. Áætlað er að norska eldsneytisverksmiðjan verði um þrjátíu sinnum stærri en sú í Svartsengi en áformunum er nánar lýst í fréttatilkynningu Statkraft, sem er hin norska Landsvirkjun.

Ákvörðun um fjárfestinguna á að liggja fyrir eftir ár og er áformað að verksmiðjan taki til starfa eftir þrjú ár. Heildarfjárfesting er áætluð um 28 milljarðar íslenskra króna. Af þeim fjármunum áætlar Benedikt að einn til tveir milljarðar króna gætu runnið til Carbon Recycling en um 30 manns starfa núna hjá fyrirtækinu á Íslandi.

visir.is sótt 26/10/2020