Íslandsbanki hefur veitt fjórtán verkefnum alls 30,5 milljónir króna úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka.

slandsbanki afhenti í dag styrki úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka. Alls voru veittar 30,5 milljónir króna til fjórtán verkefna en sjóðnum bárust 124 umsóknir um styrki. Á rúmu ári hafa verið veittir styrkir fyrir 90 milljónir króna til frumkvöðla. Frá þessu er greint á heimasíðu Íslandsbanka.

„Við úthlutun styrkja er horft til frumkvöðlaverkefna sem stuðla að þeim fjórum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem Íslandsbanki hefur ákveðið að starfa eftir. Þau eru Menntun fyrir alla, Jafnrétti kynjanna, Nýsköpun og uppbygging og Aðgerðir í loftslagsmálum,“ segir í tilkynningu bankans.

Stjórn Frumkvöðlasjóðs Íslandsbanka var skipuð Ara Kristni Jónssyni, rektor Háskólans í Reykjavík, Hrund Gunnsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Festu og Unu Steinsdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka.

Eftirfarandi verkefni hljóta styrki úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka í ár:

Greenfo

Greenfo er tæknilausn sem safnar og heldur utan um gögn um sjálfbærni fyrirtækja, einfaldar þeim að halda loftslagsbókhald og fylgjast með umhverfisáhrifum sínum. Með lausninni geta fyrirtæki og stofnanir sett fram markvissar aðgerðir í loftslagsmálum, fylgst með árangri í rauntíma og forgangsraðað verkefnum í þágu umhverfisins út frá hagkvæmni og ávinningi. 

Spaksmannsspjarir

Með því að sameina tækni og fagurfræði munu Spaksmannsspjarir hanna og framleiða fatalínu með umhverfisvænni vinnubrögðum. Verkefnið felur í sér nýtingu á þrívíðum stafrænum hönnunarflíkum í umhverfisvænni fatahönnun. Í lúxus útgáfu línunnar mun íslenskur sjálfbær æðardúnn leika lykilhlutverk.

Humble

Verkefnið miðað að því að stemma stigu við matarsóun í virðiskeðju íslensks matvælaiðnaðar með uppvinnslu matvæla. Þetta er gert með því að matreiða þau matvæli sem ekki standast útlitskröfur, eða eru að nálgast síðasta neysludag, og bjóða notandanum á lægra verði.

Marea

Með nýsköpun, tækni og skapandi hugsun er það markmið Marea að hanna fyrsta lífplastið byggt á íslenskum sjávarauðlindum. Notuð er þaraplastfilma sem er ætluð til þess að pakka inn íslensku grænmeti. Lausnin mun minnka notkun á einnota plasti en varan er nú í hönnunar- og þróunarferli.

Loftslagsskrá

Með miðlægum skráningargrunni er það tilgangur Loftslagsskrár að tryggja gagnsæi, rekjanleika og fyrirbyggja tvítalningu jöfnunar þegar fyrirtæki setja fram fullyrðingar um kolefnisjöfnun. Loftslagsskrá er þannig mikilvægur innviður til að stuðla að því að Ísland nái markmiði sínu um kolefnishlutleysi 2040.

Surova

Markmið Surova er að hanna og framleiða sjálfvirka og sjálfbæra lausn í grænmetisræktun til þess að draga úr notkun auðlinda og losun gróðurhúsalofttegunda vegna flutnings. Lausnin er lóðrétt vatnsræktunarkerfi í einangruðum gámaeiningum sem sér um framleiðsluferlið frá sáningu til pökkunar.

Plöntutíð

Plöntutíð er íslensk sviðslistahátíð sem verður haldin í annað sinn 3. – 5. september 2021 og styður við frumsköpun og nýmæli í sviðslistum á Íslandi. Plöntutíð var stofnuð sem vettvangur fyrir listamenn sem hafa sett náttúruna í forgrunn listsköpunar sinnar með það að leiðarljósi að vinna utan mannhverfrar listsköpunar og tækla loftlagskvíða.

Plastgarðar

Tilgangur verkefnisins Hey!Rúlla er að draga verulega úr plastnotkun í landbúnaði á Íslandi og öðrum löndum. Árlega eru flutt inn til Íslands um 2.000 tonn af einnota heyrúlluplasti og er því ávinningur fyrir umhverfið mikill. Stefnt er að því endurnýta plast að fullu leyti til að skapa þannig hringrásarhagkerfi.

Kennsluappið

Kennsluappið býður upp á fjölbreyttar leiðir til að læra sama námsefnið. Smáforritið nær til notenda á þeirra forsendum, óháð því hvort þeim finnist betra að læra myndrænt, hljóðrænt eða með öðrum leiðum. Kennsluappið er þegar komið út með sjö leikjum til að æfa orðaforða. Unnið er að útgáfu aukins efnis ásamt fleiri leikjum.

Samvera

Markmið Samveru er að draga úr þeirri lýðheilsuvá sem stafar af félagslegri einangrun og einmanaleika. Samvera veitir viðskiptavinum sínum tækifæri til að veita öðrum athygli, samhygð og væntumþykju og samanstendur af gjafaboxi sem inniheldur gjafakort og hugmyndum af gæðastundum saman.

Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar

Tónlist til betra lífs og farsælla samfélags er margþætt samfélagsverkefni sem styður fólk í því að endurbyggja líf sitt eftir áföll og erfiðleika, jafnframt því að þjálfa tónlistarnema í stjórnun tónlistarverkefna í samfélaginu.

Hennar Rödd

Bókin Hennar Rödd: Frásagnir kvenna af erlendum uppruna á Íslandi felur í sér vitundarvakningu um málefni jaðarhópa og jafnara, upplýstara og virðingarríkara samfélag. Tilgangurinn með útgáfu bókarinnar er að skapa umræður um málefni kvenna af erlendum uppruna og stuðla að aukinni samþættingu ólíkra menningarhópa hérlendis.  

Markaðsstofa Kópavogs

Markaðsstofa Kópavogs setur á fót atvinnu- og nýsköpunarsetur í Kópavogi í samstarfi við atvinnulífið í bænum með það að markmiði að skapa ný störf. Áhersla verður lögð á stuðning við frumkvöðla á fyrstu skrefum nýsköpunar m.a. við mótun viðskiptahugmynda og gerð viðskiptaáætlana.

Paxal

Paxal er umboðs- og markaðsskrifstofa fyrir knattspyrnu- og tónlistarmenn. Með sérstöku átaki stendur til að framleiða markaðsefni og auka tengslamyndun í þeim tilgangi að kynna íslenskar knattspyrnukonur bæði hér á landi og erlendis.

vb.is sótt 7/11/2020