Guðrún Schmidt, fræðslufulltrúi Landgræðslunnar, ræðir um loftslagsmál frá ýmsum hliðum í hlaðvarpi Bændablaðsins. Hún og segir að Íslendingar megi gjarnan temja sér meiri nægjusemi – enda sé nægjusemi ein af frumforsendum þess að mannkyninu takist að ná tökum á loftslagsvandanum. Sömuleiðis, segir Guðrún, að endurskoða verði hagkerfið sem þrífst fyrst og síðast á neyslu og aftur neyslu.
Um langt árabil hefur Guðrún unnið að verkefnum sem tengjast fræðslu og umhverfismálum og hefur lagt kapp á að fræða börn um þau. Þá hefur hún menntað sig á þessu sviði og var á sínum tíma í meistaranámi sem tók á menntun til sjálfbærni.
Kennsluefni og námskeið um umhverfis- og loftslagsmál
Guðrún hefur m.a. útbúið kennsluefni sem tekur á umhverfis- og loftslagsmálum og segir í viðtalinu að grunnskólakennurum, hvar svo sem þeir búa á landinu, sé velkomið að hafa samband við hana ef þá skortir kennsluefni og/eða hugmyndir á þessu sviði.
Guðrún er ein margra sem hafa unnið að undirbúningi námskeiða sem ganga undir heitinu Loftslagsvænn landbúnaður. Þessi námskeið eru að fara gang og í viðtalinu fjallar hún um þau – sem og námskeiðaraðar sem hún kom að á sínum tíma og var nefnd Betra bú. Sjálfbærnihugtakið kemur til umræðu í viðtalinu sem og fjölmargt annað.
Umsjónarmaður þáttarins er Áskell Þórisson, kynningarfulltrúi Landgræðslunnar.
Hér er hægt að hlusta á viðtalið í heild sinni.
bbl.is sótt 20/07/2020