Vefsvæðið Kolefnislosun.is safnar ekki sjálfkrafa neinum persónurekjanlegum gögnum um notkun og notendur. Hins vegar er notkun um vefinn mæld með þjónustum utanaðkomandi aðila sem safna persónuupplýsingum í skilningi persónuverndarlaga.

Umferð um vefsvæðið er mæld með þjónustum frá Google og Facebook en þær upplýsingar um notkun sem Kolefnislosun.is hefur aðgang að eru ekki persónurekjanlegar.

Tilgangur mælinganna er að afla almennra upplýsinga um notkun (Google Analytics) og að mæla árangur markaðsstarfs síðunnar (Facebook Pixel).

Markaðsmælingarnar sýna okkur fjöldatölur en eru ópersónurekjanlegar fyrir Kolefnislosun.is, þótt Facebook og Google búi yfir meiri upplýsingum um notendur að baki þeim fjöldatölum.

Fyrir notendur sem eru eða hafa nýlega verið innskráðir á Facebook, getur Facebook tengt upplýsingar um heimsókn á okkar vef beint við viðkomandi Facebook notanda. Með sama hætti geta auglýsingakerfi Google tengt notkunarupplýsingar við þá persónuprófíla sem þau búa yfir, prófíla sem eru ýmist nafnlausir eða innihalda persónurekjanlegar upplýsingar á borð við nafn, netfang eða símanúmer.

Fyrir þá notendur sem vilja ekki að notkun þeirra sé mæld á nokkurn hátt er skilvirkast að breyta „Do Not Track“ stillingum í viðkomandi vafra og sækja vafraviðbætur á borð við Privacy Badger, enda hafa slíkar breytingar áhrif á öll vefsvæði. Google býður einnig upp á vafraviðbót til að afþakka Google Analytics mælingar auk möguleikans að breyta skráningum notenda í auglýsinganeti sínu, þar á meðal að afþakka þær alveg.

Vefkökur (e.cookies)

Notkun Google Analytics fylgja þrjár vefkökur sem lifa mislengi: _ga, _gid og _gat.

SSL skilríki

Vefurinn notast við SSL-skilríki við gagnaflutning, þ.e. gögnin eru dulkóðuð og þar með öruggari.

Innsend gögn

Þegar notandi sendir inn ábendingu um frétt í gegnum vefform er beðið um þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að hægt sé að svara viðkomandi. Eftir að erindi berst til okkar eftir þessari leið er unnið með þær upplýsingar er fullum trúnaði heitið og aðeins viðtakandi sem svarar póstinum hefur aðgang að gögnunum.