Með einni flugferð frá Keflavíkurflugvelli til London er talið að losun á koltvíoxíði sé um það bil 210 kg á farþega. Með sömu forsendum og eru hér að ofan má því segja að til að vega upp á móti flugferð til London þyrfti hver farþegi að planta um það bil 120 trjám. Sama fjölda þarf að sjálfsögðu að planta vilji farþeginn vega upp á móti losun koltívoxíðs á heimferðinni. Upplýsingar um útblástur vegna flugferða til ólíkra áfangastaða má finna á heimasíðunni www.co2.is undir „flugvélar“.Tré, eins og aðrar plöntur, ljóstillífa. Afleiðing ljóstillífunar er sú að súrefni (O2) losnar út í andrúmslofið. Ljóstillífunarhraði er háður mörgum þáttum svo sem trjátegundum, veðurfarsskilyrðum, frjósemi jarðvegs og svo framvegis. Almennt er álitið að frá 1 hektara af skógi fáist um það bil 7 tonn af súrefni á ári. Hvert tré á þessum hektara er þá að gefa frá sér um 28 kg af súrefni á ári eða 0,077 kg á dag. Fullorðinn maður notar um 0,80 kg af súrefni á dag. Út frá þessu má sjá að 10 tré framleiða daglega það súrefni sem einn einstaklingur notar á hverjum degi.