Á næstu áratugum þurfa að verða hraðar breytingar sem snerta öll svið lífs okkar. Þó að stjórnvöld og fyrirtæki beri mesta ábyrgð þá verður dæmið aldrei leyst án okkar, almennings.

Áhugavert verkefni er að fara af stað, á vegum Rásar 1 og ráðgjafafyrirtækisins Environice sem fróðlegt verður að fylgjast með.

Þrjú heimili

Rás 1 og ráðgjafarfyrirtækið Environice leita nú að fjölskyldum, sambúðarfólki eða einstaklingum sem eru til í að stíga út fyrir þægindarammann, leggja spilin á borðið og taka venjurnar í gegn með það að markmiði að minnka kolefnisspor heimilisins um að minnsta kosti 25%. Þrjú heimili verða valin til þátttöku. Vegferðin hefst þann 15. september og stendur til 30. nóvember. 

Ráðgjafar frá Environice meta kolefnisspor hvers heimilis og verða þátttakendum innan handar í ferlinu. Þátttakendur fá líka aðstoð frá markþjálfa og fólki í nærsamfélaginu. Þeir geta valið að leggja áherslu á að minnka losunina á sem flestum sviðum eða horfa fyrst og fremst á eitthvert eitt svið, t.d. samgöngur eða mataræði.

Þátttakendur taka líka þátt í útvarpsþáttavinnslu. Þeir senda verkefnisstjóra stutta hljóðupptöku tvisvar í viku, um hvernig þeim gengur, og ræða opinskátt um reynslu sína og loftslagsmálin almennt í viðtölum við verkefnisstjóra á tveggja vikna fresti.

Hversu mikil áhrif getur venjulegt fólk haft?

Verkefnið snýst ekki um fullkomnun heldur um ferðalagið sjálft; litlu sigrana, hindranirnar og þær spurningar og vangaveltur sem kvikna á leiðinni. Við ræðum hversu mikil áhrif venjulegt fólk getur raunverulega haft og hvað þarf til að það geti lagt meira af mörkum. 

Ferðalagi þátttakenda verður lýst í útvarpsþáttum sem verða fluttir á Rás 1 í janúar og febrúar árið 2021 og birtar umfjallanir á vef Ríkisútvarpsins. Í þáttunum verður líka leitað svara við ýmsum spurningum um áhrif lífsstíls okkar á loftslagið. Hvort hefur til dæmis meiri loftslagsáhrif að fara í sunnudagsbíltúr á gömlum bensínskrjóð eða hámhorfa á Netflix? Þetta getur verið svolítið völundarhús. 

Við viljum hafa þátttakendur sem fjölbreyttasta og heimilin verða ekki öll í sama landshluta.

Verkefnið er samstarfsverkefni Rásar 1, Environice og Arnhildar Hálfdánardóttur fréttamanns og er styrkt af Loftslagssjóði.

Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst.

ruv.is sótt 24/08/2020