Opinn ársfundur Samorku verður haldinn í dag 08/09/2020. Fundurinn hófst klukkan níu og er í beinni útsendingu á Vísi.
Efni fundarins eru orkuskipti frá hinum ýmsu hliðum. Hvað þarf til að ná fram þeim orkuskiptum sem til þarf fyrir árið 2030? Hvað þarf til að skipta alveg út jarðefnaeldsneyti fyrir okkar endurnýjanlegu orkugjafa? Hver er framtíðin í orkuskiptum á hafi og í flugi?
Þetta er á meðal þess sem fjallað verður um á fundinum en í tilkynningu frá Samorku segir að orkuskipti í samgöngum séu mikilvægur hluti af því að standast alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum miðað við Parísarsamninginn.
Horfa má á fundinn hér og hér fyrir neðan má sjá dagskrá fundarins.
Dagskrá:
09.00 – Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku, býður gesti velkomna
09.05 – Ávarp ráðherra
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
09.15 – Fyrstu og önnur orkuskiptin
Helgi Jóhannesson, formaður stjórnar Samorku
09.30 – Þriðju orkuskiptin: Innviðir og orkuþörf
Auður Nanna Baldvinsdóttir og Sigurjón Kjærnested, orkuskiptahóp Samorku
10.00 – Framtíðarþróun samgangna
Colin McKerracher, Bloomberg New Energy Finance
10.20 – Orkuskiptin eru hagkvæm
Ingvar Freyr Ingvarsson, Samorku
10.40 – Svona hleður landinn: Niðurstaða rafbílarannsóknar Samorku
Scott Lepold, GEOTAB og Kjartan Rolf Árnason, orkuskiptahóp Samorku.
11.20 – Framtíð orkuskipta á hafi: Electric Port Study
Caroline Kamerbeek, DNV-GL
11.40 – Framtíð orkuskipta í flugi
Olav Mosvold Larsen, Avinor
12.00 – Græn orka verður grænt eldsneyti
Morten Stryg, Dansk Energi
visir.is sótt 08/09/2020